14.9.13

Bláber | Blueberries

Er ekki kominn tími á hollustupistil? Ég rakst á þessa grein á síðunni Fitnea.com sem er síða með alls kyns fróleik um heilbrigði, bæði andlegt og líkamlegt. Ég var svo heppin að komast aðeins í ber og þó að ég tíni bara aðalbláber en hér sé verið að tala um bláber ætla ég bara að álykta sem svo að aðalbláber hafi eitthvað af þessum eiginleikum.

(Athugið að þetta er lauslega þýtt hjá mér og ég mæli með að þið rennið í gegnum ensku greinina ef þið viljið frekari fróðleik)

{source}

11 ástæður fyrir því að borða bláber:

1. Styrkir ónæmiskerfið - bláber eru full af andoxunarefnum, eru meira að segja með meira magn af andoxunarefnum en nokkur annar ávöxtur eða grænmeti.

2. Örvar heilann - þegar við fáum okkur bláber örvast heilinn og herðir á sér, þ.e. vinnur meira og vinnur gáfulegar (ekki slæmt ;). Kannanir hafa sýnt að neysla bláberja geti hægt á öldrunartengdu minnistapi.

3. Hressir húðina við - ef þú blandar 2 tsk. af maukuðum bláberjum, 2 bollum af púðursykri og 3 tsk af sítrónusafa og berð á húðina mun húðin verða mýkri, bjartari og hreinni. (Ath. ekki tekið fram í upphaflegu greininni að þetta sé borið á húðina en ég geri fastlega ráð fyrir að svo sé)

4. Bætir sjónina - að borða tvo skammta af bláberjum á hverjum degi getur minnkað hættuna á hrörnun í augum.

5. Heilbrigt hjarta - að neyta 5 eða fleiri skammta af bláberjum í hverri viku getur stuðlað að minni hættu á hjartaáfalli hjá konum.

6. Lækkar blóðsykurinn - bláber hafa góð áhrif á blóðsykurinn hjá þeim sem eru með sykursýki. Mælt er með allavega 5 skömmtum af (low-glycemic) ávöxtum á hverjum degi og þú munt sjá jákvæðar breytingar á jafnvægi blóðsykursins innan tveggja mánaða.

7. Fyrirbyggir krabbamein - efnið sem gefur bláberjum bláa litinn ræðst á krabbameinsfrumur og getur jafnvel hamlað vexti æxlisfruma. Allt sem þú þarf að gera er að neyta hálfs bolla á dag eða eta eins og eina sneið af bláberjaböku.

8. Styrkir blöðruna - bláber, sem og trönuber, hafa í sér litlar agnir sem hindra bakteríur í að setjast í blöðru-veggina og geta komið í veg fyrir þvagrásarsýkingar.

9. Upprætir kviðfitu - í bláberjum eru efni sem brjóta niður kviðfitu! Ef þú ert ekki byrjuð/byrjaður að skófla í þig berjum nú þegar mæli ég með því að þú náir þér í eina lúku ;)

10. Vinnur á hægðatregðu - bolli af ferskum bláberjum felur í sér u.þ.b. grömm af trefjum, sem er ca. 14% af ráðlögðum dagskammt af trefjum.

11. Bein-heilbrigði - bláber hafa í sér hátt magn af efni (manganese) sem spilar stórt hlutverk í eðlilegum beinvexti.

****

I think its time for a health post. I was so lucky to get my hands on some blueberries and have been reading about what a superfood blueberries are. I found this article on Fitnea.com and recommend you check it out and start eating blueberries ;)

Enjoy your day!
m






No comments:

Post a Comment

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...