24.8.15

Grillbrauðslufsur....

Stundum er það einfalda best...stundum er pakkasúpa bara pakkasúpa og það hentar bara vel þegar allir eru að koma sér inn í vinnu og skóla. En svo má líka gera meira úr máltíðinni með því að henda í dýrindis grillbrauð. Og ekki verra ef það er svakalega einfalt í framkvæmd.

Hér er það; súpereinfaldar grillbrauðslefsur...vesssgú!

Þetta þarftu:
2,5 dl. súrmjólk *
250 gr. hveiti
40 gr. sýróp
1 tsk hjartarsalt

Ólífuolía + sjávarsalt - notað þegar brauðið er grillað.

* við áttum ekki til venjulega súrmjólk þegar við gerðum þetta fyrst, bara karamellujógúrt...og þar sem það kom svona líka glimmrandi vel höfum við bara haldið áfram að nota hana. En í staðinn sleppum við sýrópinu þar sem jógúrtin er nógu sæt.

Svona gerirðu:
Hentu hráefninu í skál og hrært saman með sleif. Þegar þetta er komið nokkuð vel saman er fínt að setja hendurnar í deigið og hnoða það létt (bara ofan í skálinni).
Klíptu litlar bollur og hnoðaðu létt saman. Athugaðu að deigið er nokkuð blautt og því er fínt að setja hveiti á hendurnar þegar bollurnar eru búnar til. Hver bolla er pressuð létt saman og sett á disk.
Ólífuolíunni er svo dassað yfir ásamt sjávarsalti eftir smekk.
Skellt á grillið og fylgst vel með...brauðið lyftir sér á grillinu. Fínt er að hita grillið í botn og lækka svo þegar þú setur brauðið á.

...á meðan á þessu stendur löllar svo bara pakkasúpan á eldavélinni, algerlega í aukahlutverki enda kemst fátt annað að en nýgrillað brauðið með svotil bráðnandi smjöri ;)






Verði ykkur að góðu!
m

2 comments:

  1. Úúúú brauðfíkillinn ég mun svo sannarlega prófa þetta!! Takk fyrir að sýna mér hvað þetta er einfalt - hamfara húsmóðirin mun þó ekki sjá um baksturinn af öryggis ástæðum ;)

    ReplyDelete
  2. juminn............en girnilegt :)

    Langholtsbúarnir

    ReplyDelete

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...