5.2.14

Afmælispartý fyrir 12 ára skvísu | Birthday party for a 12 years old girl

Núna er litla skvísan mín orðin 12 ára, ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt áfram. Það er eins gott að maður taki sér tíma, stoppi stundum og njóti hans vel, sérstaklega með börnunum sínum.
Í tilefni af þessum skemmtilega viðburði var auðvitað blásið til veislu fyrir vini og vandamenn, en nokkrum dögum áður hafði hún ásamt bekkjarsystur sinni haldið upp á afmælið í Laser tag eins og vinsælt er meðal vina hennar.

Dóttir mín hafði miklar skoðanir á hvernig veitingar ættu að vera í boði. Afmæliskakan átti að vera með kitkat utan um og Nóakroppi og m&m ofan á. Síðan voru kökurnar skreytar með útklipptum yfirvaraskeggjum en það er það vinsælasta hjá henni og vinkonum hennar þessa dagana. Síðan setti hún upp listasýningu í húsinu í tilefni af afmælinu sínu og útbjó töluna 12 úr hringjum sem hún klippti út og festi á vegginn fyrir ofan veisluborðið.

**************

My little girl just turned twelve and to celebrate this big day we invited friends and family to come over and have cakes and a good time. She did the decortations herself and helped me bake the birthday cake. These days moustaches are very popular with her and her girlfriends so she printed some out and decorated some of the cakes with them :)


Knús og kram
S

3 comments:

  1. Sif Heiða GuðmundsdóttirFebruary 5, 2014 at 9:18 AM

    Dásamlega girnilegar veitingar og fallegar skreytingar :) Hvaða spennandi kökur eru þetta á neðri hæðinni á tveggja hæða kökudisknum (þessar kringlóttu með bleika skrautinu)?? :)
    Kveðja,
    Sif

    ReplyDelete
  2. frábært þegar að þau hafa svona sterkar skoðanir á því hvað þau vilja fá, útkoman er ekkert smá fín!

    ReplyDelete
  3. töff stelpa :)

    kveðja
    Bakkafrúin

    p.s. hamingjuóskir með afmælisdaginn

    ReplyDelete

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...