16.1.15

Autt pláss | Empty space

Nú þegar stóra dásamlega veggteppið sem mamma saumaði er farið ofan í geymslu með jóladótinu er veggurinn fyrir ofan sófann afar tómlegur. Við erum búin að búa hérna síðan 2008 og enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað á að fara á þennan vegg...í laumi dreymir mig um risastórt málverk en það kostar víst skildinginn. Og á hverju ári, í janúar, hugsa ég með mér (þegar teppið fer niður) að nú verði ég að fara að setja eitthvað á blessaðan vegginn....þannig að nú þarf bara að ákveða; myndaveggur með mörgum myndum, mjóar hillur fyrir myndir og annað dúllerí eða eitt stórt málverk...

****

It happens every year at this time...the wall above the couch screams it emptiness at me when the big and wonderful christmas quilt has been taken down. We have been in this apartment since 2008 and have yet to decide on what to put on the wall above the couch. So now its crunch time and a decision must be made...


{source}
{source}
{source}

{source}
{source}
{source}
{source}
{source}

Gleðilegan föstudag!
m

14.1.15

Rocky Road

Þetta gómsæti var búið að vera lengi á "prufa-þetta" listanum mínum. Um jólin lét ég loks verða af því og meira að segja tvisvar. Mér sýndist þetta renna ljúflega ofan í mannskapinn sem þáði og mér fannst þetta ansi gott og ekki verra að framkvæmdin er einföld. Ekki vitlaust að eiga svona heimatilbúna nammibita í frysti eða að skutla í svona þegar manni vantar einfaldan og fljótlegan efttirrétt.

Það sem þú þarft:
200 gr. dökkt súkkulaði (70%)
200 gr. rjómasúkkulaði
35 gr. sykurpúða
50 gr. salthnetur
25 gr. pistasíuhnetur
5 mjúkar rjómakaramellur
5 harðar rjómakaramellur (t.d. Werther´s original)
Klípu af salti

Það sem þú gerir: 
Settu bökunarpappír í ferkantað mót (20x20cm).
Brytjaðu súkkulaðið niður, bræddu það í vatnsbaði og leyfðu því svo að kólna aðeins.
Saxaðu hneturnar og karamellurnar niður og blandaðu við súkkulaðið ásamt sykurpúðunum. Geymdu samt smá til að sáldra ofan á.
Helltu blöndunni í mótið og dreifðu úr.
Sáldraðu restinni af hnetunum og sykurpúðunum ofan á.
Skvettu smá grófu salti yfir súkkulaðið og leyfðu þessu að harðna (gott að setja inn í ísskáp í smástund).
Skerðu niður í smáa bita og njóttu :)






****
This tasty recipe has been on my list for a while now and now its finally been tried and received the thumbs up. It´s quite easy to make - no baking! - and good to have in the freezer or to make when you need a quick dessert.

This is what you need: 
200 gr. chopped dark chocolate (70%)
200 gr. chopped milk chocolate
35 gr. marshmallows
50 gr. salted peanuts
5 soft toffees, chopped
5 hard Cream toffees (Werther´s originals), chopped
Pinch of salt

This is what you do:
Line a square baking pan (20x20cm) with baking paper.
Melt the chocolate and let cool slightly.
Add most of the marshmallows, peanuts, pistachios and the caramels to the chocolate, but save some of it to sprinkle on top.
Leave to set in the fridge, then cut to small bites and enjoy!

o&o
m

13.1.15

Looking for a new home

Það er orðið löngu tímabært fyrir mig að stækka við mig en við erum ennþá í okkar fyrstu íbúð sem við hjónin keyptum 1993. Hún var þá 58 fermetrar, síðan hafa bæst 3 börn við og íbúðin stækkað í 118 fermetra, með viðbyggingu og kaupum á sameign. Nú er samt svo komið að við getum ekki stækkað íbúðina frekar en það vantar sárlega herbergi handa yngsta barninu. Svo nú erum við búin að selja íbúðina og erum á fullu að leita að stærri eign, helst í Laugardalnum. Þannig að uppáhalds iðja mín þessa dagana er að skoða fasteignaauglýsingar.  Þetta verður þá nokkurs konar þema verkefni hjá mér á þessu ári; finna íbúð og að gera hana að drauma heimilinu.  Hérna eru nokkrar myndir frá núverandi heimilinu.

****
I am on the hunt for a new home. We sold our apartment this fall and are now desperately seeking a new one, preferably in the same area we live in now. It is with a mixed set of emotion that we say goodbye to the old home, it´s the one we bought before we had any kids and then it grew with us and has doubled in size (we added an extra livingroom some years ago). So now my spare time is used to scout the real estate advertisments...hoping that we find a new home before we have to deliver the old one to the new owners *fingers crossed* :)












Eigið góðan dag
Knús
S

6.1.15

Hitt & þetta | This & that

Stundum er ágætt að renna í gegnum netið, leita að innblæstri, uppskriftum eða bara láta sig dreyma. Sumt gleður augað algerlega af ástæðulausu...er bara fallegt...og annað grípur augað af því manni langar í það.

1. Ómótstæðilega krúttlegt
2. Nauðsynlegt í vetur
3. Nýtt ár - ný heilsumarkmið ;)
4. Innblástur - fyrir annars konar markmið
5. Ferðadraumar
6. Kanilhjörtu - er með kanilæði!

****

Random things that catch my attention while surfing the internet, for various reasons....

1. Irresistibly cute
2. A must in the winter cold
3. New year - new goals
4. Inspirations - for a another goal
5. Travel plans in the making
6. Cinnamon hearts - cinnamon craving!


{source}
{source}
{source}
{source}
{source}
{source}

Njótið dagsins
m

3.1.15

Winter Wonderland

Við búum í sannkölluðu vetrarríki þessa dagana og um að gera að njóta þess. Það er óneitanlega meira gaman að fara út að leika sér í snjónum heldur en í klaka og rigningu. Við höfum líka verið nokkuð dugleg að nýta snjóinn síðustu daga og í dag nutum við útiveru við Elliðavatn og tókum að sjálfsögðu nokkrar myndir.












****

We are living in Winter Wonderland these days and have been enjoying it to the fullest. Today we took a walk by the lake Elliðavatn and of course we took some photos :)

****

Vona að þið séuð að njóta snjósins líka!
m

2.1.15

2015




Þá er það komið...nýtt ár. Við höfum haft það gott í fríinu og gert þetta hefðbundna; snúið sólarhringnum við, borðað góðan mat, lesið nýjar bækur, hitt fjölskylduna og spilað. Yfirleitt finnst mér hálf tregafullt að ljúka jólafríinu og skunda inn í janúar en ekki í þetta sinn. Í þetta sinn tek ég glöð á móti janúar og hlakka til að detta inn í rútínuna aftur. Ætla að líta á janúar og í reynd allt nýja árið eins og óskrifað blað sem bíður eftir að á það ritist skemmtilegar upplifanir og minningar.






****
And here it is...a new year. We´ve had a wonderful Christmas vacation but soon it is time to start the daily routine again; school and work. I am usually rather gloomy when this luxurious time ends but not this time. This time I welcome the routine and look forward to making memories and enjoy life in the new year.


Njótið dagsins!
m

18.12.14

Snjódagur | Snowday

Þeir hafa nú verið nokkrir, snjódagarnir, undanfarið og ekkert lát virðist þar á. Um daginn, þegar foreldrar á höfuðborgarsvæðinu voru beðnir um að sækja börnin sín í skólann ákváðum við að hafa það huggulegt heima....ekki alltaf sem öll fjölskyldan er bara komin snemma heim svona í miðri viku. Við bökuðum okkur brauðbollur og hituðum súkkulaði og nutum þess að horfa á snjóbylinn út um gluggann :)

****

We are getting our fair share of snow these days and the city looks really good all dressed in white. Earlier this week the weather was so bad that parents were advised to pick up their kids at school. When home, we decided to enjoy being home early in day the whole family. Hot chocolate and newly baked bread buns and safe and warm inside...can´t go wrong with that :)









Njótið dagsins
m
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...