Showing posts with label ideas. Show all posts
Showing posts with label ideas. Show all posts

5.12.14

Aðventukransar


Ég hef oftast verið tilbúin tímalega með aðventu kransinn en í ár hefur þetta gengið mjög brösuglega. Ég er búin að vera gjörsamlega andlaus og nokkuð tímalaus líka. Búin að selja ofan af mér íbúðina en gengur ekkert að finna nýtt heimili. Svo vildi svo skemmtilega til að mér var boðið á ráðstefnu í Róm í lok nóvember og aðventukransagerðin var aðeins sett á bið. Núna langar mig hins vegar til að búa mér til aðventukrans og er á fullu að leita mér að flottum hugmyndum :). Ég brá mér í IKEA um seinustu helgi og fann fullt af hugmyndum þar.





(source)

(source)

Njótið aðventunnar
Knús 
S

8.10.13

Yndislegar stofur / Happy living room

Ég veit að ég á að vera á fullu að gera eldhúsið hlýlegt og taka myndir en auðvitað get ég aldrei gert það sem ég á að gera. Í stað þess að klára bara eldhúsið er ég farin að láta mig dreyma um að breyta til í stofunni hjá mér...og eins og vanalega er ég búin að finna fullt af fallegum stofum sem mig langar í :)

*************

I know I should be busy finishing my kitchen make-over, but as usual I can't do what I should. So in stead I´m dreaming about doing some changes in my living room :) And here are some inspirational living rooms to dream about :)

{source}

{source}


{source}

{source}

{source}


{source}

Enjoy your day
Knús
S

2.10.13

Eldhús hugmyndir | Kitchen ideas

Núna þegar ég er að dunda mér við að gera eldhúsið mitt meira huggulegt og kósý, er internetið og bloggheimar skemmtilegur staður til að byrja á. Það er ekki vandræðum háð að finna flottar hugmyndir og skemmtilegar útfærslur. Hérna eru nokkrar af þeim hugmyndum sem ég hef fallið fyrir.

 *************
I have been trying to do some small changes in my kitchen, to make it more cozy and cute. I have been looking at some good ideas that I´ve found on the internet, here are some of them.


{source}
Flott að nýta veggplásið á milli skápanna til að festa eitthvað dúllerí á. Svo finnst mér þessi græni stól og dúkurinn og gólfmottan æði :) | I like the idea of using the space between the cabins to hang up some cute stuff. And I love the green chair, the rug and the table cloth :)



{source}
Ég á einmitt svona þrep sem hefðu bara gott að því að fá smá upplyftingu. | I have the same steps, maybe I should give them a make-over?


{source}


{source}
Allskonar litfagurt eldhúsdót heilar mig alveg upp úr skónum :) | Really love all kinds of colorful kitchenstuff :)


{source}
Ég er kannski ekki alveg að fara að fá mér svona ísskáp en mér finnst þessi samsetning æði. | Love this combination, comes nicely together.

{source}

Skemmtilegur myndaveggurinn þarna, get ímyndað mér að þarna hafi verið veggfóðrað með Bo Bedre :) | This wall is a great idea, probably used Bo Bedre to wallpaper with :)


{source}
Þessi gamla góða vigt hefur fengið skemmtilegt hlutverk á meðan hún er ekki notkun, ég held að ég eigi að eiga eina svona einhverstaðar í kassa, kannski kominn tími til að draga hana fram. | I think I have a scale like this one somewhere, maybe I should give it a new role.


{source}

Fallegar dósir og gamlir hlutir búa yfir miklum sjarma. | Vintage tins and old stuff have a lot of charm.

{source}
{source}
Mér finnst alveg nausynlegt að hafa eitthvað grænt og fallegt í eldhúsglugganum mínum. | It´s absoulutely neceseray to have something green in the kitchen window.

Enjoy your day
Knús 
S

15.6.13

Afmælisinnblástur | Birthday inspiration

Það er farið að styttast í tveggja ára afmæli litlu prinsessunar minnar og núna er ég á fullu að leita að skemmtilegum hugmyndum af afmæliskökum og útileikjum. Í ár ætlum við að halda útipartý, erum búin að vera að óska eftir góðu veðri, annars verðum við bara að klæða okkur vel :)

Hérna eru svo nokkrar hugmyndir sem gæti verið skemmtilegt að prófa.  Einnig er hægt að kýkja á 1 árs afmælis veisluna síðan í fyrra hérna.

*******
Soon I will have a litle birthday girl, my litle one will be 2 years old next Monday. So now I am looking for good ideas for her birthday party, both for the birthday cake and some outdoor games.  This year we are having the birthday outside so we hope for good weather and if we don´t get that we´ll just have to dress warmly.  Here you can see pictures from her birthday last year.

{source}

{source}

{source}

{source}

{source}

{source}

 Enjoy your day
Knus og kram
S

25.3.13

Sumarbústaðaferð | Cottage trip

Yndisleg helgi að baki í sumarbústað...ekki amalegt að hefja páskafríið á svoleiðis lúxus. Eins og vill verða þegar stórfjölskyldan fer saman í ferðalag er mikið stuð og fjör í krakkaskaranum okkar. Til að beisla þessa orku settum við því upp páskaeggjaleit handa ungunum...og reyndum að láta þau hlaupa sem mest um ;)

Við földum lítil súkkulaðiegg og einnig vorum við með lítil plastegg sem hægt er að fylla með góðgæti eða einhverju smálegu. Ég veit ekki hvort svona egg fást hér á landi en þessi fékk mágkona mín í Ameríkunni og vöktu þau mikla lukku.

Við bjuggum til lítinn páskafugl sem átti að hafa verpt eggjunum út um allar trissur og reglurnar voru að vinna saman í því að finna egginn, leita að lituðum fjöðrum sem gátu verið vísbendingar og finna svo sjálfan fuglinn. Svo varð að sjálfsögðu að skipta jafnt á milli allra.

Þetta hafðist allt saman og allir voru sáttir með sín egg.

****
Went to a lovely cottage over the weekend with my parents, siblings and all of our kids. As can be expected when such a large group comes together there is a bit of a noise and lots of fun. We decided to channel the energy and set up an easter egg hunt for the kids...with the intention of letting them run around for awhile ;) We scattered some chocolate eggs and plastic eggs (the ones you can put candy or some treats into) and told them that the Easter bird (yup he exists) has laid some eggs all around the yard and they have to find them. They had to find all the eggs, work together, find the bird and split the goods equally between the group. 

This all went according to plan and everyone had fun.




Eigið ljúfan dag | Have a nice day
m

18.2.13

DIY bakki fær nýtt útlit / DIY tray gets new look

Ég fékk þennan fallega bakka í gjöf frá syni mínum fyrir 4 árum. Hann hafði þá smíðað hann í skólanum og færði foreldrum sínum hann stoltur. Þessi bakki hefur verið mikið notaður við ýmis tækifæri eins og bera nammi og annað gúmmelaði inn í stofu á laugardagskvöldum. Hans aðal starf hefur samt verið að bera fram afmælismorgun mat, þegar einhver í fjölskyldunni á afmæli. Það er nefnilega hefð í minni fjölskyldu að á afmælisdeginum sínum er hver fjölskyldumeðlimur vakin upp með fögrum söng, bakkelsi og kertaljósi.

Nú styttist í mitt eigið afmæli og bakkin góði var eitthvað farinn að gefa sig. Hann hafði verið límdur saman upphaflega, svo hliðarnar voru dottnar af honum og stefndi í að hann dytti allur í sundur ef ekkert yrði aðgert. Sennilega hafði viðurinn í honum aldrei verið meðhöndlaður svo það voru komnir fitublettir í botninn. Nýlega rakst ég svo á færslu hjá einum af uppáhalds bloggara okkar systra henni Fabelaktig þar sem hún var að punta upp á bakka ekki ósvipuðum mínum, svo ég stóðst ekki mátið og prófaði sjálf. Hér er hægt að sjá hvernig hún fór að með sinn bakka .

Ég naut reyndar aðstoðar föður míns, en hann er mjög handlaginn og áhugasmur um að gera upp fallega hluti. Hann hefur nú skrúfað saman bakkann, svo skellti hann sér í Föndru og keypti litlar sætar tré ljósaperur, sem hann festi á sem fætur. Fabelaktig notar fætur sem hún fékk í Tiger á sinn bakka og fást þær líka hérna í Tiger.  Það er búið að vera smá höfuðverkur hjá mér að komast að því hvort ég á að hafa bakkann svartan eða hvítan og svo hvort ég á að hafa smá shabby-chick look á honum með því að pússa málinguna af í hornum og hliðum. Eftir nokkrar vangaveltur hef ég ákveðið að hafa bakkann svartan og sleppa því að pússa hann niður, því ég get alltaf gert það seinna ef mig langar í tilbreytingu :)

***************

I got this beautiful tray as a gift from my son. He made it in school, 4 years ago. This tray has been used a lot, especially on cozy saturday evenings, when we need to carry candy and other good stuff in to our livingroom. But its biggest job has been to bring the birthday child in our family breakfast in bed. Now my birthday is coming up soon and the tray has been rather worn out and I was so lucky to see one of our favorit bloggers Fabelaktig showing how she made a tray similar to mine. So I decided to follow her advise and give my tray a make over. Here you can see how Fabelaktig did her try.





Enjoy your day
Knús 
S

14.2.13

Lítil kommóða fær nýtt útlit | Easy DIY

Þetta litla kommóðukríli var keypt fyrir nokkrum árum í IKEA, fyrstu árin var hún bara óbreytt en síðan málaði ég hana hvíta og lét dóttir mína fá hana fyrir smáhluti og hún var aðeins að reyna að merkja hvað væri hvar.

Seinustu 2 árin hefur hún svo verið inni í geymslu og ég var farin að spá í að losa mig við hana. En núna mitt í breytingunum á herbergi dóttur minnar þá fengum við þá fínu hugmynd að prófa bara að mála kommóðuna í stíl við herbergið. Ég er líka svo voða hrifin af þessum lit að mig langaði endilega að mála eitthvað meira en bara einn vegg með honum, svo ég er eiginlega búin að vera að leita um húsið eftir einhverju til að mála :)

**********

I have had this small drawer that I bought in Ikea, for some years. For the last two years it was in my storage and I was thinking about getting rid of it. But since we are doing a make over in my daughters room and I am so in love with the color we used on the wall (and have been looking for something else to use it on ;)) we decided to give the little drawer a make over as well.



Kommóðan eins og hún leit út fyrir breytingar, ekki mikið fyrir augað greyið.
***
The little drawer before, not much for the eye


Eftir breytingarnar, frekar sæt finnst ykkur ekki ?
***
After the  make over, rather cute dont you think ?

Á þrjár skúffur setti ég skrapppappír, sem ég límdi niður  og lakkaði yfir með Mod podge
***
I used scrap paper and Mod podge under and over the paper

Þessum litlu uglukrílum sem ég hef verið að sauma langaði aðeins að máta kommóðuna :)
***
These little owls that I have been sewing wanted to try the new drawer :)

Enjoy your day
Knús
S

16.11.11

Svo lítill tími fyrir allt sem gaman væri að gera...

Kannast einhver við það? Ætla samt að líta framhjá þeirri staðreynd að mikill tími fer í fröken Epli...

Ef ég hefði tíma myndi ég drífa í að gera svona hreindýrahaus. Hef verð með þetta á heilanum síðustu misserin, þ.e. að splæsa í eitt stykki en ákvað nú að athuga hvort hægt væri að finna leiðbeiningar um hvernig mætti gera slíkt sjálfur. Og viti menn, það er allt til á netinu..eins og fröken Epli er dugleg að sýna mér ;)



Fyrir þau ykkar sem hafið tíma og áhuga eru leiðbeiningar hér. Bara að muna að stækka sniðið að vild...hægt að leika sér með það endalaust. Sé alveg fyrir mér einn stóran (fyrir þá sem hafa góða lofthæð) eða bara lítinn og nettan.

Hver veit nema maður drífi sig bara í föndrið :)
o&o
M

12.11.11

Bókstafir...


...hafa verið að heilla mig undanfarið. Finnst svoldið flott að pota þeim hér og þar...á hillur og veggi, í glugga...Ég hef hins vegar ekki séð mikið framboð af þeim í verslunum hér, nema kannski í Tiger en þeir eru t.d. að selja pappastafi sem hægt er að skreyta sjálfir og einnig keramikstafi. Ég er hins vegar að hugsa um að græja þetta bara sjálf og geta þá haft stafina algerlega eftir mínu höfði. Þarf reyndar að kalla til einn aðstoðarmann, nefnilega pápa gamla, sem á þær græjur sem til þarf í verkið :) Pælingin er að prenta út staf í þeirri stærð sem mig langar í, klippa hann út og teikna á t.d. mdf-við. Svo er bara að saga stafinn út, pússa og mála að vild...sjáum hvernig það fer...

Kasparas regnbue

Kasparas regnbue
Það getur líka verið flott að raða saman bókstöfum í orð, eftir því sem við á:

Fjeldborg


Gæti vel hugsað mér að skrifa HEIMA og líma gamalt landakort framan á (...)

Flott í eldhúsið og nauðsynlegt að minna sig á þetta ;)

Þá er ekki eftir neinu að bíða, bara vinda sér í verkið!
O&O
M
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...