Showing posts with label winter. Show all posts
Showing posts with label winter. Show all posts

8.1.16

Janúar

Lengi vel fundust mér janúar og febrúar alltaf vera leiðinlegustu mánuðir ársins en ekki lengur. Þó janúar sé vissulega langur og dimmur er dagurinn farinn að lengjast hratt á þessum árstíma og það er nú ekki hægt annað en að gleðjast yfir því.

Á þessum árstíma er líka fínt að setja sér markmið fyrir árið, strengja heit ef vill...eða bara skoða árið sem framundan er; hvernig sé ég það fyrir mér o.s.frv. Einnig er tilvalið að skoða árið sem var að líða; lærði ég eitthvað á árinu? Er eitthvað sem ég vil gera betur á nýja árinu? Allt saman með jákvæðni í huga að sjálfsögðu.

Eitt af mínum markmiðum er að njóta útiverunnar betur á veturnar og reyna að finna fleiri tækifæri til þess að vera úti í náttúrunni þrátt fyrir að hún sé á kafi í snjó :)

Og það þarf ekki að fara langt til þess að fá náttúruna beint í æð...þessar myndir voru til dæmis teknar í göngutúr í Öskjuhlíðinni um síðustu helgi.






Eigið ljúfan dag!
m

3.1.15

Winter Wonderland

Við búum í sannkölluðu vetrarríki þessa dagana og um að gera að njóta þess. Það er óneitanlega meira gaman að fara út að leika sér í snjónum heldur en í klaka og rigningu. Við höfum líka verið nokkuð dugleg að nýta snjóinn síðustu daga og í dag nutum við útiveru við Elliðavatn og tókum að sjálfsögðu nokkrar myndir.












****

We are living in Winter Wonderland these days and have been enjoying it to the fullest. Today we took a walk by the lake Elliðavatn and of course we took some photos :)

****

Vona að þið séuð að njóta snjósins líka!
m
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...