Showing posts with label link-party. Show all posts
Showing posts with label link-party. Show all posts

18.6.15

Vestfirðir - bezt í heimi!

Maður verður nú að rembast smá...vestfirðingurinn sjálfur ;)

Orðin langeygð eftir sumartilfinningunni lögðum við af stað í dalinn okkar. Það er svo mikið yndi að komast þangað og endurnærir alltaf sálina....þrátt fyrir að dalurinn hafi nú verið með kuldalegra móti. En sólin skein alla dagana og síðasta daginn var hitastigið jafnvel nokkrum stigum fyrir ofan tíuna, hvað getur maður beðið um meira?


{Dansað af gleði í Arnarfirðinum }

{Potturinn góði sem verður fullkláraður í sumar }

{ Miðnæstursólin í Dýrafirði }

{ Þessi bar bein sín í Keldudal }

{ Nestisferðir slá alltaf í gegn }

{ Sápukúlur og sól...góð blanda ;) }

{ <3 }

{ Yfirgefið hreiður vakti forvitni }

{ Lítil Grasa-Gudda }

{ Í dalnum hjálpast allir að, stórir sem smáir }

{ Belgískar vöfflur í Simbahöllinni klikka ekki }

Þessi bloggpóstur er okkar framlag í Sumarbloggpartý 2015 sem hún Stína á Svo margt fallegt startaði í byrjun júní. Hún hefur áður haldið svona bloggpartý og í þetta sinn er partýið haldið sameiginlega á nokkrum bloggum. Ef þig langar til að vera með er það sáraeinfalt, smelltu bara hér til að sjá nánari upplýsingar. 

Sumarkveðja!
m



Vertu innilega velkomin í Sumar linkpartý 2015

Það eru nokkur lykilatriði að skemmtilegu og velheppnuðu partýi sem við viljum að þú hafir í huga ef þú tekur þátt:
1. Heilsaðu upp á gestgjafana, það er jú alltaf góður siður.
Kíktu á bloggin í listanum hér ofar og ef þér líkar þá endilega followaðu
2. Láttu  vita hvar þú ert.
Taktu fram í sumarbloggpóstinum (helst með virkum linki) að þú takir þátt svo þínir lesendur viti af partýinu.
3. þú mátt taka með þér vini.
þér er velkomið að deila á fb og bjóða vinum þínum að kíkja og taka þátt.
4. Heilsaðu upp á aðra gesti.
Kiktu á amk 2 linka sem vekja áhuga þinn, bæði á undan þínum og á eftir og skildu eftir komment.
5. Þetta er opið partý út Júní.
Þú mátt ss setja inn eins marga sumarbloggpósta og þú vilt 

Svo nú er bara að sýna sig og sjá aðra.

Add your link
Collection closes in 12d 2h 15m.
Let other people know about it through twitter.

powered by InLinkz.com

24.7.13

Dásamlegur sumardagur | A wonderful summerday

Sumarið kom í dag...loksins...og við tókum stímið á garðinn með kósíheit í huga. Kökur, svalandi drykkir, börnin á trampólíninu, börnin að sulla og gott spjall í sól og sumaryl. Lífið er bara dásamlegt á svona dögum.

Við ætlum að sjálfsögðu að skutla þessum pósti í sumar-link-partýið hjá Svo margt fallegt, endilega kíkið þar inn og sjáið öll líflegu sumarbloggin :)

****

The Summer finally graced us with its presence and we welcomed it. We headed out to the garden with the intent of drinking every bit of sunshine that came our way. We had cakes, refreshing drinks, kids bouncing on the "what-you-might-call-it", kids splashing about in the water, and a nice talk in what we would consider a really good summer weather here in the North. Life is just perfect on days
likes this.



Eigið ljúfan dag í dag...vona að sólin skíni á okkur öll :)
mAs
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...