27.11.16

Aðventu krans - A4 jólaáskorun

Við systur erum spenntar í að taka þátt í A4 jóláskoruninni ásamt nokkrum skemmtilegum bloggurum. Áskorunin fólst í því að velja efnivið í A4 og föndra eitthvað jólalegt. Það var nú ekki erfitt að finna eitthvað fallegt þarna, frekar erfitt að geta ekki bara valið allt ;)

Fyrsta föndrið, því við gátum ekki takmarkað okkur við bara eitt verkefni, var að föndra aðventukertin. Við settum myndina upp í photoshop og ákváðum að hafa þetta frekar stílhreint þetta árið; fallegur krans og tölustafir í miðju. Til þess að útbúa kertið notuðum við sérstakt lím fyrir kerti en límið er eldhemjandi. Pappírinn fengum við einnig í A4 en hann er mjög fallegur og eilítið yrjóttur. Bakkann og könglana áttum við fyrir en ákváðum að bæta þessum fallegu hvítu fjöðrum við þar sem þær gefa skreytingunni mjúkan blæ.











Við erum alsælar með aðventukransinn og þökkum A4 og Soffíu í Skreytum hús fyrir þessa skemmtilegu áskorun. Hér er listi yfir þá bloggara sem taka þátt í áskoruninni, endilega kíkið inn til þeirra líka:
Svo margt fallegt
Fífur og fiður
Skreytum hús
Pigment
Bjargey & co

Og þessi blogg eiga eftir að koma með eitthvað sniðugt tengt áskoruninni:
Ynjur
Blúndur og blóm
Hvítir mávar
Dætur
Frú Galin




Eigið ljúft kvöld :)
mAs

26.11.16

Beðið eftir jólunum

Við systur gáfum út í fyrra, ásamt frænku okkar; Steinunni Gunnarsdóttir, jóla-afþreyingabók í formi dagatals. Dagatalið heitir Beðið eftir jólunum og er fullt af þrautum, föndri, fróðleik, uppskriftum og ýmsu fleira.

Við erum afar stoltar af þessu verkefni og vonum að fólk hafi gaman af. Beðið eftir jólunum fæst m.a. í Safnbúð Þjóðminjasafnsins, Spilavinum, Motivo á Selfossi, Iðu Zimsen og Mál&Menningu. Og svo er hægt að kaupa það beint af okkur á facebook síðu Skeggja.

Á morgun, sunnudag, ætlum við svo að vera með viðburð á KEX og kynna dagatalið, föndra með krökkunum og gefa eitthvað jólalegt smakk upp úr dagatalinu. Það væri svo gaman að sjá ykkur :)







Eigið ljúfan laugardag!
mAs

12.10.16

Stelpur rokka!

Ég á tvær litlur frænkur sem hafa ákveðna lund, vita hvað þær vilja og láta ekki segja sér fyrir verkum....helst ekki ;) Á fallegum sumardegi í júlí fengum við þessar skottur til að vera fyrirsætur í þessum litla myndaþætti.

Ég hef mikla trú á því að þessar ungu dömur verði ákveðnar konur sem láta til sín taka í framtíðinni.












Farið varlega í votviðrinu.
mAs

11.10.16

Loppemarkaður í Kaupmannahöfn

Ég skellti mér ásamt vinkonu minni í stelpuferð til Kaupmannaferðar að heimsækja góða vinkonu okkar. Ég bjó í fimm ár í Danmörku og það var orðið alltof langt síðan ég hafði heimsótt borgina. Þegar ég bjó þar fannst mér svo gaman að rölta um á þessum svokölluðu loppemörkuðum. Þannig að ég var voða kát með að sjá að það var lítill sætur markaður við lestarstöðina hjá okkur.  Ég rölti aðeins um og dauðlangaði að taka með mér heim þennan dýrindis ruggustól og nokkrar bastkörfur :)
Það væri yndislegt ef það væri meira um svona markaði hér á landi.











Knús og kram
S

10.10.16

Borðstofupælingar_framhald

Síðasti póstur (og það er víst orðið nokkuð liðið síðan hann var birtur) snerist um borðstofustóla hugleiðingar fyrir væntanlegt heimili. Heimilið er svona smátt og smátt að taka á sig mynd og eftir miklar vangaveltur var tekin ákvörðun um að kaupa Eames DSW stóla hjá Pennanum. Við erum alsæl með þá enda er gott að sitja í þeim og þeir tala líka svona fallega við ömmustólana okkar.







Eigið ljúft kvöld
m

6.5.16

Borðstofustólapælingar...

Nú styttist í að við fáum nýja heimilið okkar afhent og að sjálfsögðu eru margar pælingar í gangi varðandi hvernig það eigi að vera. Eitt af því sem mig dreymir um eru nýjir borðstofustólar. Þeir gömlu hafa þjónað okkur vel en eru orðnir slitnir og ljótir. Og þá er það bara spurningin um hvernig stóla skuli fá sér?

Eames stólarnir eru alltaf flottir og klassískir og myndu passa vel við tvo erfðagripi sem við eigum og fá heiðurssess við sitt hvorn endann á borðinu. Einnig væri ég alveg til í Hans Wegner stóla eða aðra stóla í þessum mid-century stíl. Hvað sem verður fyrir valinu verða þægindin að vera til staðar þar sem á mínu heimili er oft setið lengi við spilamennsku.

{source}
{source}
{source}
{source}
{source}
{source}
{source}

Eigið góðan föstudag!
mAs

16.4.16

Helgarferð

Mæðgnaferð til Edinborgar ný yfirstaðin. Það er yndislegt að skreppa í svona ferðalag, sérstaklega til svona fallegrar borgar eins og Edinborg er. Veðrið var gott, vorið vel farið af stað, búðirnar stóðu undir væntingum og félagsskapurinn góður.










Eigið ljúfan laugardag!
mAs
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...