13.3.13

Skemmtilegt blogg | Fun blog

Sukkertoj for oyet er eitt af okkar uppáhalds Skandinavísku bloggum, virkilega fallegt og fullt af fallegum innblæstri...svo ekki sé nú minnst á alla fallegu pastellitina. Núna vill svo skemmtilega til að hún Ida Susanne í Sukkertoj for oyet er með gjafaleik hérna. 

Endilega kíkið við hjá henni og sjáið hvað hún er með skemmtilegt í vinning.

*******
Sukkertoj for oyet is one of our favorite Skandinavian blogs. It is very beautiful and full of inspiration and not to mention all the beautiful pastel colors. 

And now Ida Susanne in Sukertoy for oyet is having give away here, you just have to go to her page to see the lovely price she is offering.


sukkertoyforoyet.blogspot.no


sukkertoyforoyet.blogspot.no
  

sukkertoyforoyet.blogspot.no


Hope you have a wonderful day
Knús
S


12.3.13

Sambosa matreitt / sambosa making

Mér finnst alltaf gaman að læra eitthvað nýtt og núna um helgina lærði ég að matreiða sambosa. Vinkona mín kom með sambosa í afmæli dóttur minnar í janúar síðast liðinn og þetta vakti mikla lukku meðal gesta. Við systur, ásamt tengdamóðir minni og mágkonu, voru boðnar til vinkonu minnar núna um helgina til að við gætum lært að matbúa þennan rétt, uppskriftin sem notum er frá Zansibar sem er eyja fyrir utan Tansaníu á Austurströnd Afríku.  Því miður komst Magga syst ekki en við hinar skelltum okkur. Við útbjuggum tvær tegundir af rétt þessum; grænmetis og nautahakk.

*****************

I really enjoy learning something new and this weekend I was invited to learn to cook sambosa. My friend brought sambosas to my daughters birthday last january and it was very popular among my guests. I, my sister, mother in law and sister in law were invited to come to my friends house to learn to cook this course, the recipe we are using is from Zanzibar wich is an island out of the coast of Tanzania in East Africa.  My sister could not make it but I and the others went. We made two types of sambosas; one vegeterian and one with beef.

 Fyrri fyllingin með nautahakk, lauk og kóríander
Stuffing one with meat, onions and coriander
Coriander 
 Stuffing number two vegeterian, carrots, onions, green beans, cabbage and coriander


Deigið er hægt að fá í flestum Asískum verslunum og er geymt í frysti / You can find the pastry in a shop that sells Asian food, its usually in the freezer

Næstum tilbúið / Almost ready

Djúpsteikt er upp úr palmolin feit / deep fried using palmolin
 
Þetta er mjög skemmtilegur og bragðgóður matur, hægt að útbúa allkonar fyllingar. Mæli með því að þið prufið :) / This is a fun and tasty food and you can make all kinds of fillings. I recommend you try it :)

Enjoy your day
Knús
S

11.3.13

Páskainnblástur á mánudegi | Easter inspiration

Nú líður að páskum og ég er að hugsa um að setja mig í gírinn í fyrra fallinu þetta árið. Á það nefnilega til að vera að setja greinina í vasann og tína upp dúlleríð tveimur dögum fyrir páska...langar svoldið til að njóta þess aðeins lengur þetta árið ;) Ég er nú samt svo sem ekki mikið að skreyta fyrir páskana en finnst nú alveg ómissandi að hafa greinar í vasa og falleg blóm í vasa...

Hér kemur smá páska innblástur....

****

Thinking about getting into an Easter mood early this year...at least early for me ;) Would like to enjoy the decorations (although I don´t decorate much for Easter) a bit longer than just two days...which has sometimes happened ;)

Here is a little Easter inspiration...

{source}
{source}
{source}
{source}
{source}
{source}

Segjum það gott í bili, njótið dagsins! | That´s it for now, enjoy your day!
m

10.3.13

Göngutúr í borginni | Walkabout in the city

Enn einn dýrðardagurinn runninn upp, fallegur og bjartur. Ég stóðst ekki vorfiðringinn í gær og tók góðan göngutúr í bænum í gær með mömmu. Það var svo gott veður og svo mikið vor í lofti að við vildum helst ekki að snúa við. Við rákum auðvitað nefið inn í flottar búðir..og auðvitað fengum við okkur eitthvað gott í gogginn, mæli hiklaust með "brunchinum" á Vegamótum.

Og nú skín sólin og svei mér þá ef maður verður ekki bara að skella sér út með köllunum sínum :)

****

Another beautiful day before me, sunny and bright. Yesterday was also very bright and gave such a feeling of spring that I just had to go out for a long stroll with my mother. We walked to the city center, checked out some stores and had a really nice brunch. Such a good day and we just couldn´t stop walking.

And now the sun is even brighter and I this a perfect day for a another stroll. This time with my husband and sons :)




Enjoy your Sunday!
m

7.3.13

Vor...? | Spring...?

Blóm í vasa lífga svo sannarlega upp á heimilið og eru góð leið til að setja smá heimilið í smá vorfíling. Það skýtur kannski skökku við að vera að tala um vorið þar sem veturinn ákvað að kíkja í heimsókn til okkar á suðvestur horninu...ég sem hélt að vorið væri bara alveg að detta í hús ;)

En þá er kannski bara um að gera að skella blómum í vasa, dást að litunum og muna...það kemur bráðum vor...

****

Flowers in a vase are a nice and simple way to give your home a spring feeling while you wait for the real spring to arrive. It might be far off for me since the winter decided to make an appearance in the south-west corner of Iceland but until now we´ve had a rather nice and almost snow free season. So nice that I even thought that spring was just around the corner...I never learn ;)

But maybe this just the right time to buy some flowers, enjoy the colors and rembember that Spring will be here soon...


{source}
{source}
{source}
{source}
{source}
{source}

Have a nice day...and those of you who have to go out into the snow; be careful :)
m

6.3.13

It´s my birthday

Í gær var 5 mars, hann er alltaf í smá uppáhaldi hjá mér alveg síðan ég var 2 já ára og lærði að það væri afmælisdagurinn minn :). Mér finnst alveg bráð nauðsynlegt að gera mér dagamun á afmælinu og í tilefni dagsins bakaði ég 2 kökur og svo kom mamma með uppháls kökuna mína úr Mosfellsbakarí. Ekki amalegt að fá svona sendingu og svo fékk ég blóm frá manninum mínum og systir. Svo var dagurinn fullkomnaður með nokkrum góðum gestum.

******************

Yesterday was 5th of March, it has been one of my favorite day ever since I was 2 years old and learned it was my birthday :). I think it is absolutely necessary to celebrate your birthday or at least do something special on your birthday. I baked two cakes and my mother brought me my favorit cake from the baker. My husband and my sister brought me flowers and the day was made perfect with a visit from few good guests.


Flowers from my husband
Flowers from my sister



Fallegi blómvöndurinn frá bóndanum
You are never to old to blow a candle on your birthday
Enjoy your day
Knús
S

2.3.13

Smá heimadúll | At home


Það þarf ekki mikið tilefni til að langa að taka myndir, þessar fallegu bleiku rósir kölluðu til dæmis á að láta taka myndir af sér. Það er yndislegt hvað það lífgar upp á heimilið að hafa falleg blóm. Ég er samt alltof löt að kaupa mér blómvendi, ætla núna að vera duglegri að kippa með mér fallegum blómum þegar ég fer út í búð. Á sumrinn er ég voða dugleg að fara út í garð og ná mér í blóm og greinar, bara svona til að fá smá sumar líka inn í húsið. Mér finnst alveg yndislegt þegar vorið er að koma, þá lifna grænu fingurnir mínir við og vilja fara að gera eitthvað skemmtilegt, svo núna er ég á fullu að undirbúa sáningu sumarblóma og grænmetis.

********

You dont need much reason to want to take photos, these pink roses called out for a photo shoot. Flowers really brighten up the home and I should buy them more often, its easy to pick up a beautiful bouquet when you´re out shopping. In the sumer time I often go out in the garden to get me something green to try to bring the sumer inside also.



Svo er ég nú alltaf hrifin af gamla sæta skápnum mínum, sem ég keypti í einum af sunnudagsrúntum mínum um sveitir Jótlands á Loppemarkaði á einum sveitabænum á heilar 400 kr dk. og það var þegar gengið var bara 11 kr. Ég sakna þess að hafa ekki svona loppemarkaði til að kýkja á.

**********
I´m always so fond of my old brown cabinet, I got it in Denmark from a Loppermarket (fleamarket), for only 400 dk.kr. and that was when the exchange rate was only 11 kr. I really miss going to these markets...
Enjoy your day
Knús
S
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...